Pizza er einn uppáhalds maturinn minn og mér finnst mjög gaman að gera pizzur. Upp á síðkastið hef ég verið að gera tilraunir með deigið en ég hef alltaf geymt að skrá niður. Ég ætla sem sagt að gera það hér og nú.
Ég fór í nokkrar rannsóknir á netinu um hvað gerir gott deig. Jamie Oliver segir „make sure it’s a strong [flour] that’s high in gluten, as this will transform into a lovely, elastic dough, which is what you want.“ Það er þannig sem þeir ná að láta deigið verða nógu asnalega teygjanlegt til að gera fáranleg trikk. Ég nota samt bara venjulegt hveiti þannig að þetta er ekkert stórmál. Lesa meira »
Davíð ætlar sem sagt ekki að hætta sem seðlabankastjóri. Guð minn góður, hversu lengi á þetta að þurfa að ganga?
Seðlabankasjóri á að vera pólitískt hlutlaus. Davíð Oddsson er pólitíkus, það sést mjög vel að hann hefur ekkert hætt í pólitíkinni eftir að hann varð seðlabankastjóri. Til dæmis svarar hann forsætisráðherra fullum hálsi í þessu bréfi og hendir inn nokkrum sprengjum eins og honum einum er lagið. Þetta er ekki fyrsta dæmið um að Davíð hafi ekki hætt pólitíkinni. Margfrægt Kastljóssviðtal þar sem hann ver sig og sínar gjörðir á meðan hann hraunar yfir alla aðra er annað dæmi. Seðlabankastjóri á að vera yfir þannig hluti hafinn.
Við skulum heldur ekki gleyma að það var Davíð sjálfur sem byggði upp kerfið sem hrundi svona eftirminnilega í haust. Það var hans ríkisstjórn sem seldi bankana á mjög einkennilegan hátt (en það er önnur umræða), hans ríkisstjórn bjó til reglurnar í kringum bankana, hans ríkisstjórn sem hjálpaði við að byggja upp hið „öfluga fjármálalíf“ sem hér var og svo framvegis. Það var hans ríkisstjórn sem vildi gera Ísland að einni af fjármálamiðstöðvum heimsins, án þess að styrkja það sem hefði haldið því uppi: Traustur gjaldmiðill og/eða góður varasjóður af gjaldeyri.
Sem er annar punktur. Ef hann var búinn að sjá þetta allt fyrir og hversu óstöðugir bankarnir voru, af hverju var hann, sem formaður stjónar seðlabankans, ekki búinn að gera ráðstafanir til að auka gjaldeyrisvaraforðann? Sem er eitthvað sem flestir hagfræðingar hafa síðan sagt að hefðu getað forðað því sem forðað varð. Það að hann hafi ekki gert það eru alvarleg mistök í starfi.
Það mikilvægasta í fari seðlabankastjóra er traust. Viðskptafólk og við Ísland verða að geta treyst því að seðlabankastjóri taki hlutlausar ákvarðanir. Ef það er ekki til staðar sama hver ástæðan er finnst mér að seðlabankastjórinn ætti að segja af sér og leyfa öðrum að taka við.Það er löngu orðið augljóst að það treysta mjög fáir Davíð og hann ætti að segja af sér.
Mér finnst líka fáránlegt að hann hafi ekki sagt af sér ennþá. Hann þyrfti ekki einu sinni að taka nokkra ábyrgð á neinu, hann gæti einfaldlega sagst ætla að hætta fyrr vegna þess að á tímum sem þessum sé gott að fá nýtt fólk í helstu stjórnunarstöður, bara til þess að auka traust fjárfesta á að hlutirnir væru að breytast. Ástæðan fyrir því að hann hefur ekki þegar sagt af sér er fyrst og fremst þrjóska, sem er svo sem fín fyrir stjórnmálamenn, en ekki fyrir stjórnunarstöðu sem þarfnast trausts og liðleika.
Allt þetta gerir Davíð vanhæfan í mínum augum og hann þarf að taka ábyrgð á því sem hefur gerst.
Það styttist óðum í að ég fari út til úgglanda og ég enda á Hróarskeldu í byrjun júlí. Ég hef þess vegna aðeins byrjað að hlusta á þau bönd sem verða að spila og ég er að setja saman lista yfir þær sem mig langar að sjá (í engri sérstakri röð, og það vantar sennilega fullt og ég á örugglega ekki eftir að sjá þetta allt ;) ) :
Og örugglega fullt í viðbót, þetta er alla vega listi til að búa til áætlun ;)

Helst í fréttum er það að ég var að kaupa mér Dark Side of the Moon, Wish You Were Here og The Wall á vínylplötu!!! Það er náttúrulega ekkert nema snilld! Sumir öfundsjúkir einstaklingar mundu kannski gera grín af mér út af því að ég á ekki spilara sem spilar þessar fornu skífur en við reynum að redda því áður en ég gifti mig…
Mér finnst þetta nú bara samt algjör snilld! Að eiga þessi meistaraverk á orginal formatti og síðan er allt “artwork” svo stórt og bara… flott! Plöturnar mundu sóma sér vel uppi í hillu eða á veggnum, þó það yrði nú ekki meira.
(Mig langaði líka að koma umslaginu af Dark Side fyrst á síðuna því mér finnst það eitt það flottasta sem gert hefur verið)
Ég hef fylgst aðeins með álverinu sem er í bakgarðinum mínum og það virðist ætla að verða spennandi kosning um helgina. Annars vegar er það fólk sem vill stækkun (mestmegnis Alcan og starfsmenn þess, sýnist mér) sem lætur eins og álverið sé það besta í heimi, mengi lítið sem ekkert og haldi Hafnarfirði lifandi. Síðan eru það hinir sem vilja ekkert með þessa stækkun hafa og láta eins og það yrði óbyggilegt í Hafnarfirði með svona risastórt álver í bakgarðinum.
Ég veit ekki betur en að álverið sé þarna nú þegar og ef það sem ég hef séð er rétt þá muni það hafa mjög lítil áhrif ef það er stækkað, bæði mengunarlega og fjárhagslega fyrir Hafnarfjörð. Lesa meira »
Hneyksli og skandall. Á Þorláksmessu, 23. desember, daginn fyrir aðfangadag, var skóli á Ítalíu. Þetta var reyndar ekki alveg venjulegur dagur.. Fyrri helmingurinn átti reyndar að vera það en við enduðum bara á að spila og éta jólakökur og annað jólastöff. Seinni parturinn var áhugaverðari, það var boðið upp á piadine (“flatkökur” með stöffi, nokkuð gott bara) og candy floss og getið hvað, það var DJ í húsinu… að spila húsið og annað technosorp, ég var ekki sáttur. Síðustu tímana gerðum við svo sem lítið sem ekkert.. við strukum reyndar á kaffhús í grendinni (sem er stórglæpur, af einhverjum ástæðum) annars héngum bara og biðum eftir að við mættum fara heim. Eftir skóla fór ég með krökkunum út að borða og við fengum okkur.. Pizzu!
Upp rann aðfangadagur eins og hver annar dagur Lesa meira »
As promised here is the english version of my essay wich I did for history here in Italy. I guess the teacher is really interested in me and Iceland because every time we have an essay I’m supposed to do something about Iceland. This time the topic was “what do I like about Iceland”. Yeah. As simple as that. I mean, what are you supposed to say?? She gave me an example “I like Iceland because it’s cold”, I don’t know about you but I don’t particularly like that part.
Anyways, I sat down and wrote the pros and cons about life and this is what came out. Read on: Lesa meira »
Ítalía virðist ekki hafa verðrakerfi, bara hitakerfi. Á sumrin er heitt og sólríkt og á haustin er ekki-eins-heitt og sólríkt (kem með rapport á hinar árstíðirnar þegar þar að kemur, ekki það að ég búist við því að þær séu eitthvað öðruvísi). Síðan ég kom hingað er búið að vera sól flesta dagana, nokkra daga skýjað og einn dag hefur verið smá vindur. Ég var ánægður með að fá smá vind til að hræra í þessu en hinir innfæddu kvörtuðu og kveinuðu.
Veðurleysið er orðið þreytt! Ég sakna vondra veðra og storma, sem Ísland virðist hafa nóg af þessa dagana. Mér finnst gaman að vera fastur heima í allt of hvössum vindi og þurfa að hlaupa á eftir grillinu sínu á meðan maður reynir forðast það að fá trampolín í hausinn. Lesa meira »
Á Ítalíu er víst haldið upp á hrekkjavökuna (31. október) að Amerískum sið… Eða ég veit það ekki.. Það er alla vega haldið upp á hana með flestu tilheyrandi. Það var búið að vera að auglýsa hrekkjavöku þetta og hrekkjavöku hitt í langan tíma og frétti að þetta væri partydagur í meira lagi. Ég var því farinn að vera kvíðinn þegar leið á vikuna og ég hafði ekkert að gera (sérstaklega þar sem ég var ný búinn að uppgötva að ég á mér ekkert líf hérna). Þá var mér boðið í hrekkjavökuparty hjá einni bekkjarhálfsystur minni og létti mér við það.
Upp rennur 31. október og ég vakna drullu þreyttur klukkan 6 um morguninn (svaf allt of lítið um nóttina). Skólinn líður nokkuð hratt og örugglega (en þvílík snilld er maps.google.com, ég sýndi bekkjarfélögum mínum húsið mitt á Íslandi og þeir sýndu mér hin ýmsustu hús víðsvegar um heiminn). Eftir skóla var hins vegar ítölskutími í Ravenna (40 mín. frá Forlí (skólaborgin mín)) og ég, að drepast úr þreytu dröslaði mér þangað. Allt gekk vel, fyrir utan það að heilinn minn var ekki í neinu ástandi til að læra neitt.
Þegar ég kom aftur til Forlí hafði ég ekki tíma til að fara heim svo ég þurfti að mæta í partyið 2 tímum of snemma, jibbí. Ég mætti og fékk að hanga þar, við skreyttum og sonna, drápum tímann nokkuð vel bara.
Um klukkan 8 fóru gestirnir að hellast inn Lesa meira »
Jebb, og á mitt eigið lén og allt!
Alla vega, ég fer burt í mánuð og hvað gerist? Allt í einu er komið fullt af spyware og vírusum á tölvuna mína (sem hýsti gömlu síðuna) og það drasl náði að eyðileggja allt *grenj*. Alla vega.. Ég fór þá bara að leita mér að nýrri hýsingu og fann Bluehost sem er ein mesta snilld í heimi.
Þú vilt væntanlega vita hvað ég hef verið að gera upp á síðkastið. Jæja, ég er sem sagt á Ítalíu sem skiptinemi er er búinn að vera þar síðastu tvo mánuði. Meira kemur seinna.. Ætla að halda áfram að fikta í síðunni minni
Copyright © 2004 - 2006 Gunnar Sturla Ágústuson - Proudly powered by WordPress - Rétt XHTML og CSS