Gunnar Sturla

“Tveir sjómenn létu lífið vegna gaseitrunar frá rotnandi fiski”

Gunnar - Daglegt líf

29. June, 2005 - 00:56:01

Arnar benti mér á þessa frétt af mbl.is áðan og mér fannst hún viðeigandi þar sem ég vinn við að verka rotnandi úldinn fisk.

“Tveir litháenskir sjómenn á fiskibát létu lífið í dag skömmu eftir að þeir höfðu farið í báti sínum frá Karlskrona í Svíþjóð. Talið er að mennirnir hafi andað að sér eitruðum lofttegundum sem mynduðust þegar fiskur rotnaði í lest bátsins. Þriðji sjómaðurinn var fluttur þungt haldinn á sjúkrahús en sex manna áhöfn var um borð í bátnum.

Báturinn sendi út neyðarkall síðdegis í dag skömmu eftir að hann fór úr höfn í Karlskrona. Svo virðist sem mennirnir tveir, sem létust, hafi farið niður í lest skipsins þar sem leið yfir þá. Félagi þeirra fór niður í lestina til hjálpar og þar leið einnig yfir hann.”

Svara


Copyright © 2004 - 2006 Gunnar Sturla Ágústuson - Proudly powered by WordPress - Rétt XHTML og CSS