Gunnar Sturla

Síðustu dagar

Gunnar - Daglegt líf

14. April, 2006 - 03:52:44

Ég er búinn að vera í páskafríi síðan á fyrir helgi og á mánudaginn skellti ég, Arnar og Unnar okkur í sund, það var snilld, vorum þarna eins og einhverjir hálfvitar að slást í lauginni og skvetta á hvorn annan og svona dót sem maður gerir þegar maður er 12 en við erum víst enn ungir í anda :P

Eftir það fórum við og föndruðum með gínuhaus sem Atli keypti fyrir hönd Fuglakagl productions, fyrir myndina okkar Curse of the Noresman (working title). Við gerðum hann holan að innan til að koma fyrir “heila” og sprengju (gettu af hverju :D ). Síðan á miðvikudaginn meikuðum við hann og gerðum vel töff (Reyni að redda myndum bráðlega)

Á Þriðjudaginn eftir vinnu fórum við í fótbolta við nokkra starfsmenn Nings (og nokkra í viðbót) svo það var basically Krónan á móti Nings. Við vorum samtals 17 (8 í Krónunni á móti 9 í Nings). Það var drullu gaman, við alveg að gefa 120% og með að berjast á fullu en þeir voru bara betri og þeir hljóta að æfa (góð afsökun?) Alla vega, þeir rústuðu fyrri leiknum en rétt unnu seinni 10-7 eða eitthvað.

Á miðvikudaginn var ég Arnar og Atli bara eitthvað að dúlla okkur með gínuhausinn þegar Egill (Mr. Boss) hringdi og bað okkur að vinna (eftir að við vorum allir búinir að hafna Invgvari að vinna í staðinn fyrir hann). Það var allt craazy, páskarnir nálgast og Krónan var víst ódýrari í einhverri verðkönnun. Við Arnar vorum sendir í mjólkurkælinn sem var pakkaðri en ég hef séð hann og hef ég séð hann pakkaðan fyrir (við þurftum að klifra ofan á vögnunum til að ná í hluti). Við leystum úr því og bailuðum síðan hálftíma fyrir lokun og fengum okkur pizzu.

Aftur var fótbolti um kvöldið, í þetta sinn á móti einhverju Kópavogspakki (tveir strákar og nokkrar stelpur) sem við rústuðum 10-9 (var orðið tæpt undir lokin) en það fyndnasta var hve grófir við vorum, Ingvar tók þessar stelpur og negldi þeim upp við vegginn, hockey style, og í miðjum leik var ein hver stelpan með boltann þegar Atli Ax kemur á ferðinni með lappirnar á undan og neglir henni niður out of nowhere. Hún gerði ekki mikið það sem eftir var af leiknum.

Shit ég er fúll.. var búinn að skrifa miklu meira en þá var ég ekki loggaður inn í þetta helvíti og þetta sendist ekki í gegn!! Sem betur ver var ég forvitinn að vita hvað ég væri búinn að skrifa mikið svo ég copyaði þetta inn í word og þetta bjargaðist. Ég segi þá bara frá deginum í dag seinna :)

Svara


Copyright © 2004 - 2006 Gunnar Sturla Ágústuson - Proudly powered by WordPress - Rétt XHTML og CSS