
Helst í fréttum er það að ég var að kaupa mér Dark Side of the Moon, Wish You Were Here og The Wall á vínylplötu!!! Það er náttúrulega ekkert nema snilld! Sumir öfundsjúkir einstaklingar mundu kannski gera grín af mér út af því að ég á ekki spilara sem spilar þessar fornu skífur en við reynum að redda því áður en ég gifti mig…
Mér finnst þetta nú bara samt algjör snilld! Að eiga þessi meistaraverk á orginal formatti og síðan er allt “artwork” svo stórt og bara… flott! Plöturnar mundu sóma sér vel uppi í hillu eða á veggnum, þó það yrði nú ekki meira.
(Mig langaði líka að koma umslaginu af Dark Side fyrst á síðuna því mér finnst það eitt það flottasta sem gert hefur verið)
Hvernig væri að fara að gera eitthvað við þessa síðu??
Bögg.. Gerðu eitthvað við þessa síðu, hún sökkar svona dauð :) Ég breytist í spam ef þú ferð ekki að gera eitthvað!
Veistu.. ég held að þú sért sá eini sem kemur hingað reglulega (að mér meðtöldum) Kannski geri ég samt eitthvað.. kannski ekki.. Fylgstu með ;)
Jæja! Gó Gunnar.. eða ekki.
Legg til að þú búir til pappakassa!
Af hverju ætti ég að búa til pappakassa??
Copyright © 2004 - 2006 Gunnar Sturla Ágústuson - Proudly powered by WordPress - Rétt XHTML og CSS