Gunnar Sturla

Færslusafn fyrir flokkinn 'Netið'



Google sniðugir

Gunnar - Netið - Engin svör »

13. May, 2005 - 21:35:12

Google er andskoti sniðugt verkfæri. Það er ekki nóg með að þú getir fundið allan andskotann (excuse my french) heldur bjóða þeir upp á myndaleit, og kort af Bandaríkjunum og margt fleira.

Þeir eru líka með fréttaþjónustu sem fer í gegnum allar bestu fréttasíðurnar og birtir þær nýjustu á síðunni. Það er líka hægt að leita í 4.500 frétta gagnagrunni. Það sem er kannski enn betra er að það er hægt að breyta forsíðunni, að gera hana að sinni eigin. Ég er til dæmis með extra margar Sci/Tech fréttir og nokkrar nýjustu Firefox fréttirnar.

Ég var að skoða korta hlutann, í gervihnattaham og tók eftir Íslandi. Ég zoomaði inn á Hafnarfjörðinn og sá meira að segja Setbergsskóla (mjög óskýrt en sá hann þó!) Fyrir ukkur sem sjáið hann ekki þá er hann bogin lína á miðjum skjánum.



Copyright © 2004 - 2006 Gunnar Sturla Ágústuson - Proudly powered by WordPress - Rétt XHTML og CSS